Margrét Kolka hlaut styrk úr sjóði Ágústar Ármanns
Margrét Kolka Hlöðversdóttir, framhaldsnemi í rythmískri tónlist við MÍT, hlaut styrk úr minningarsjóði Ágústar Ármanns í ár.Í tilkynningu frá stjórn sjóðsins segir að Margrét sé í söngnámi sem aðalfag og píanóleik sem aukagrein ásamt undirgreinum. Auk þess að hafa stundað nám í söng og píanóleik, lærði hún á þverflautu bæði við Tónlistarskólann í Garðabæ og síðar við Tónskólann í Neskaupstað.
Margrét stundaði nám við Tónskólann í Neskaupstað 2008 til 2016 og byrjaði á að læra á píanó þar og var Ágúst Ármann hennar fyrsti kennari við skólann.
Margrét lauk grunnprófi í klassískum söng í Söngskólanum í Reykjavík 2017 áður en hún færði sig yfir í FÍH til að læra jazzsöng.
„Við óskum Margréti Kolku til hamingju með styrkinn og óskum henni góðs gengis í sínu námi,“ segir í tilkynningunni.
Þetta er í fimmta sinn sem úthlutað er úr minningarsjóðnum. Sjóðurinn var stofnaður árið 2015 og fer úthlutun fram á fæðingardegi Ágústar Ármanns 23.febrúar ár hvert.