Lúxus síldarvertíð

Gengið hefur vel að veiða síld fyrir austan land og vinnsla á henni í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur verið samfelld undanfarið. 

 

Bátarnir Börkur NK, Beitir NK, Bjarni Ólafsson AK og Margrét EA hafa allir verið að landa síld til vinnslu í fiskiðjuverinu. Síðan hefur Hákon EA verið að landa frystri síld í Neskaupstað. Lokið var við löndun úr Beiti NK 1250 tonnum í gærmorgun og var þá komið að Bjarna Ólafssyni AK sem landaði tæplega 600 tonn. Í gær var síðan verið að landa úr Margréti EA sem er með tæplega 1100 tonn. 

Haft er eftir Tómasi Kárasyni skipstjóra Beitis NK að vertíðin hafi verið mjög fín. „Það má svo sannarlega segja að þetta sé lúxusvertíð. Tíðin hefur verið góð og við höfum lengst af einungis þurft að fara 40-50 mílur til að sækja síldina. Veiðin hefur mest farið fram á Héraðsflóa, sunnan við Digranesflakið og norðan við Glettinganesflak,“ bætir Tómas við.

Síldin sem hefur fengist hefur verið góð. Stór eða um 400 gr. og átulaus. „Ég held að vart sé hægt að hugsa sér betra eða ferskara hráefni. Við höfum gjarnan verið að koma með um 1200 tonn í hverri veiðiferð og aflinn hefur fengist í 3-4 holum,“ segir Tómas

Upp á síðkastið hefur orðið vart við síld af öðrum stofni í bland við norsk-íslensku síldina og hafa bátarnir þess vegna fært sig utar og samkvæmt heimsíðu Síldarvinnslunnar er athyglisvert er að þessi síld, sem er talin vera íslenska sumargotssíld, er algjörlega laus við sýkingu og fjarri því eins feit og norsk-íslenska síldin.

„Fyrir okkur er þetta afar róleg síldarvertíð; það er stutt að fara, það veiðist vel og því þurfa skipin oft að bíða í landi á milli veiðiferða því það eru afköst fiskiðjuversins sem stjórna í reyndinni veiðunum. Við lukum við löndun í gærmorgun en við förum örugglega ekki út fyrr en í fyrsta lagi annað kvöld þannig að menn hafa það tiltölulega náðugt,“ segir Tómas að lokum.

 

Beitir NK með 530 tonna hol af síld. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.