Lögregluæfing á Egilsstöðum
Umfangsmikil æfing hjá lögreglunni er nú í gangi á Egilsstöðum.Þeim sem leið áttu um iðnaðarhverfið efst í bænum brá nokkuð í brún við að sjá mikinn fjölda lögreglubíla við hús björgunarsveitarinnar.
Þar höfðu einnig sérsveitarmenn raðað sér upp í stiga, tilbúnir að ráðast inn að því er virtist.
Í samtali við Austurfrétt sagði Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn að ekki væri um að ræða aðgerð heldur æfingu. Í henni taka þátt lögregluþjónar af öllu Austurlandi.