Listahátíð í Reykjavík mætt á Egilsstaðaflugvöll
Í dag klukkan 15.15 mun Listahátíð í Reykjavík stíga á svið á Egilsstaðaflugvelli. Verkið ber nafnið Einangrun. Það verður flutt aftur klukkan 18.15 í dag.Í tilkynningu segir að þegar ljóst var að ekki yrði mögulegt að halda Listahátíð í Reykjavík með hefðbundnum hætti árið 2020 vegna heimsfaraldursins var ákveðið að dreifa úr hátíðinni yfir heilt ár.
"Þannig hefur verið boðið upp á viðburði smátt og smátt eftir því sem aðstæður hafa leyft. Nú er farið að halla undir lok þessarar lengstu hátíðar í yfir 50 ára sögu Listahátíðar en nokkrir viðburðir eru eftir núna í júní. Einangrun er einn þeirra," segir í tilkynningunni.
"Um er að ræða samskotsverk úr smiðju Leikhópsins Lakehouse þar sem raðað er saman ljóðum, örsögum og stuttum leikþáttum. Ellefu höfundar hvaðanæva af landinu lögðu til efnivið í verkið og úr varð 30 mínútna verk sem birtist okkur nú í óvenjulegu umhverfi – á flugvöllum í fjórum landshlutum. Flytjandi er Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari og tónlistarmaður."
Verkið hefur áður verið flutt á Reykjavíkur- og Ísafjarðarflugvöllum og héðan fer það á Akureyrarflugvöll.