Laufabrauðið seldist upp hjá Ránarkonum
Kvennadeild Slysavarnadeildarinnar Ránar á Seyðisfirði hélt hina árlegu laufabrauðssölu sína um helgina. Er skemmst frá því að segja að laufabrauðið seldist upp.„Þetta gekk alveg ótrúlega vel hjá okkur í ár,“ segir Sólrún Friðbergsdóttir talskona deildarinnar. „Við vorum tíu talsins konurnar í deildinni sem stóðum í laufabrauðsbakstrinum að þessu sinni.“
Sem fyrr segir seldist laufabrauðið upp en alls voru 890 kökur í boði á 200 kr. stykkið eða samtals fyrir tæplega 180.000 króna.
Fram kemur í máli Sólrúnar að engir af körlunum í Rán hafi tekið þátt í bakstrinum enda þeir uppteknir við að byggja við húsnæði sitt. Nýbyggingin tryggir að allur tækjakostur deildarinnar geti verið innanhúss.
„Afraksturinn af laufabrauðssölunni verður notaður í þessa nýbyggingu þannig að við konurnar erum mjög ánægðar með útkomuna,“ segir Sólrún.
Kvennadeildin að störfum við laufabrauðsbaksturinn. Ljósmynd: Sunna Dögg Guðjónsdóttir.