Orkumálinn 2024

Landsnet með viðbúnað út af mögulegri ísingu

Landsnet sendi í morgun frá sér viðvörun um möguleg áhrif mikillar úrkomu og slyddu sem von er á í nótt á flutningskerfi raforku á Austurlandi. Vakt er á svæðinu en ekki er talið að veðrið hafi teljandi áhrif á kerfið.

„Það er bakki með ákafri úrkomu sem fer suður yfir austanvert landið seint í nótt og framan af morgundeginum sem við höfum mögulega áhyggjur af að geti haft áhrif á kerfið okkar á svæðinu,“ segir Steinunn Þórarinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets.

Viðvörunin var gefin út í morgun og staðan metin aftur síðdegis að loknum fundi með veðurfræðingi. Í samtali við Austurfrétt sagði Steinunn að hjá Landsneti væri ekki reiknað með að neitt gerðist en viðbúnaður sem þessi sé eftir verkferlum þegar illviðri sé í nánd. „Við förum yfir svæðin okkar og hvar veðrið getur haft áhrif þannig við getum brugðist við.“

Von er á að í veðrið gangi um klukkan þrjú í nótt og standi fram á miðjan dag á morgun. Ofan 400 metra hæðar yfir sjávarmáli verður 1-2 stiga frost, yfirmettun og líklega mikil skýjaísing.

Í 150-300 metra hæð verður krapi og slydda en þar er einkum hætt við áraun slydduísingar á línur. Mest er hættan talin á línum austur yfir Austfjarðafjöll, Vopnafjarðarlínu og Fljótsdalslínu, einkum um Hallormsstaðarháls. Einnig er fylgst með Kópaskerslínu og Þeistareykjalínu.

Landsnet gefur út tilkynningar á vef sínum, Facebook og sérstöku forriti fyrir snjalltæki ef eitthvað gerist.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.