Kynningarfundur um Vakann á morgun

vakinn.jpg

Kynningarfundur verður um Vakann, nýtt gæða- og umhverfiskerfi íslenskrar ferðaþjónustu, á Hótel Hérað á morgun, þriðjudag 6. mars frá klukkan 11:00-13:30.

 

„Markmiðið með VAKANUM er að efla gæði og öryggi í ferðaþjónustu á Íslandi með handleiðslu og stuðningi, ásamt því byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja,“ segir í tilkynningu.

„Þannig er kerfið fyrst og fremst verkfæri til að aðstoða þátttakendur við að auka gæði og öryggi. Þetta er gert með hjálpargögnum og leiðsögn. Ferðaþjónustuaðilar eru ekki skyldugir að taka þátt í VAKANUM en styrkleikar kerfisins eiga einmitt að felast í því að kostir þess séu öllum augljósir.
 
Kerfið er tvískipt, þ.e. stjörnuflokkun fyrir gististaði og úttekt á ferðaþjónustu annarri en gistingu. Þá fylgir VAKANUM einnig umhverfiskerfi sem aðilar hafa val um að taka þátt í, en það kostar ekkert aukalega.
 
VAKINN er afsprengi þróunarverkefnis sem iðnaðarráðuneytið fól Ferðamálastofu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að vinna að haustið 2008. Verkefnið er unnið í náinni samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtök Íslands og þannig hefur skapast breið samstaða innan greinarinnar um þennan mikilvæga málaflokk. Þá hafa fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki lagt lóð sitt á vogarskálina í undirbúningsferlinu. Byggt er á kerfi frá Nýja-Sjálandi er kallast Qualmark og þykir hafa heppnast afar vel.
 
Af hverju eru gæða- og umhverfismál svona mikilvæg fyrir íslenska ferðaþjónustu og hvaða hag hafa ferðaþjónustufyrirtæki hafa af því að taka þátt? Nokkuð augljós ástæða er samkeppnissjónarmið, þ.e. Ísland á sem ferðamannaland í harðri samkeppni við mörg önnur lönd. Það er síður en svo sjálfgefið að ferðamenn leggi leið sýna hingað til lands því valkostirnir eru svo sannarlega margir. VAKINN er þannig markaðstæki, bæði fyrir Ísland sem áfangastað og hvert það fyrirtæki sem tekur þátt. En af hverju að tengja umhverfismál við gæðamálin? Kannanir meðal ferðamanna hafa árum saman fært okkur heim sanninn um að meginaðdráttarafl Íslands er hin stórfenglega náttúra. Hún er gulleggið okkar sem við þurfum því að varðveita og skila áfram ósködduðu til komandi kynslóða
 
Áhersla hefur verið lögð á að hafa kerfið eins einfalt og kostur er og sníða það þannig að það henti öllum. Þá hefur þátttökugjaldi einnig verið stillt í hóf, en það ræðst af umfangi rekstrar viðkomandi fyrirtækis.
 
Nýr vefur VAKANS hefur einnig verið opnaður en slóðin er www.vakinn.is. Þar er að finna allar upplýsingar um kerfið, umsóknarform, hjálpargögn og fleira.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.