Kross við Djúpavogskirkju í grenndarkynningu
Uppsetning á 2,9 metra háum krossi við Djúpavogskirkju verður sett í grenndarkynningu.Heimastjórn Djúpavogs staðfesti á fundi sínum í síðasta mánuði bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 24. mars um að fyrirhugaðar framkvæmdir við Djúpavogskirkju skyldu grenndarkynntar í samræmi við skipulagslög.
Fjallað er um málið á vefsíðu Múlaþings. Þar segir að bókun ráðsins gerir ráð fyrir því að arkitekt kirkjunnar verði umsagnaraðili áformanna en þau verði jafnframt kynnt á heimasíðu sveitarfélagsins og íbúum gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum.
“Framkvæmdin er tilkynningarskyld til byggingarfulltrúa og felur í sér uppsetningu á 2,9 m háum krossi á lóð kirkjunnar en hann er í sömu hlutföllum og kross við altari kirkjunnar,” segir á vefsíðunni.
“Krossinn verður festur á færanlegar undirstöður úr steypu (svokallaða dverga) svo auðvelt verði að færa hann ef til þess kemur. Krossinn verður jafnframt festur niður með fyrirferðalitlum stögum til að koma í veg fyrir að hann fjúki.”
Athugasemdum og ábendingum skal skila í síðasta lagi þann 7. maí 2021 í tölvupósti á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Jafnframt er unnt að óska eftir frekari upplýsingum á sama netfangi.
Mynd: mulathing.is