Orkumálinn 2024

Jódís kallar eftir aðgerðum í málum SÁÁ

Jódís Skúladóttir þingmaður Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi kallar eftir aðgerðum í málum SÁÁ. Hún segir að nóg sé komið. Sjálf hafi hún verið misnotuð af starfsmanni SÁÁ sem hún hitti síðar í meðferð á Staðarfelli.

Jódís fjallar um málið í ítarlegri færslu á Facebook. Eins og sést hefur í fréttum að undanförnu hafa málefni SÁÁ verið fyrirferðamikil í umræðunni. Nú síðast sagði formaður SÁÁ af sér vegna vændiskaupa.

„Við eigum ótrúlega mörg SÁÁ margt að þakka. Öflugt meðferðarúrræði sem flest líta á sem hið eina raunhæfa þegar fíknivandi er annars vegar. En við getum ekki horft fram hjá því að hvert ömurlega málið hefur rekið annað árum saman innan SÁÁ,“ segir Jódís.

„Ég þekki vel til, bæði sem skjólstæðingur, aðstandandi og starfsmaður til skamms tíma. Þegar fólk á líf sitt að launa úrræði sem það í góðri trú leitar til er erfitt og sárt að sjá gallana og taka undir gagnrýni á þetta sama úrræði. Ég er stofnfélagi í Rótin - félag um velferð og lífsgæði kvenna, en ástæðan fyrir því að ég mætti á stofnfund var fyrst og fremst að mér blöskraði svo óendanlega margt í starfsemi og hugmyndafræði innan SÁÁ. Fyrst og fremst það sem snýr að konum og börnum og þau rótgrónu kvenfjandsamlegu og karllægu gildi sem ríktu innan samtakanna.“

Eftirmeðferð á Staðarfelli

„Þegar ég mætti með rútunni í eftirmeðferð á Staðarfell í Dölum tók á móti mér maður sem var kanóna innan SÁÁ, sá sami hafði misnotað yfirburðaðstöðu sína gagnvart mér þrem árum fyrr. Ég hafði þá verið 17 ára, hann 30 ára. Hann, edrú, gaf mér áfengi, káfaði á mér og tróð tungunni upp í mig. Ég forðaði mér en hann mætti heim til mín um nóttina og vildi komast inn,“ segir Jódís.

„Þegar fundum okkar bar saman þarna í Dölunum á sólríkum sumardegi þrem árum síðar kallaði hann mig afsíðis og spurði hvort við værum ekki bara ok? Það kæmi sér illa fyrir okkur bæði að vera eitthvað að ræða þetta

Þetta er mín saga. Ég hef heyrt óteljandi aðrar, orðið vitni af enn öðru.

Þessar yfirmannahrókeringar og hallarbyltingar innan SÁÁ duga ekki til meðan menningin breytist ekki.

Ég vil taka fram að innan SÁÁ starfar margt fólk sem flest er framúrskarandi í sínum störfum. Gagnrýni mín snýr ekki að því starfsfólki sem mætir til starfa af heillindum og sinnir sjúklingum af alúð á degi hverjum. Það er bara tímabært að við sem samfélag horfumst í augu við að heilbrigðisþjónustu ætti ekki að reka af frjálsum félagasamtökum án þess að nokkurra spurninga sé spurt!“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.