Íbúi við Fossgötu á Seyðisfirði ekki á leið heim í bráð
Hanna Christel Sigurkarlsdóttir einn af íbúum við Fossgötu á Seyðisfirði segir að hún og fjölskylda hennar séu ekki á leið heim í bráð. Eins og kunnugt er af fréttum var rýmingu aflétt af Fossgötu um helgina en hún hafði staðið í mánuð eða frá því að skriðuföllin hófust.„Það er þannig að skriðan er beint fyrir framan nefið á okkur og því ætlum við aðeins að bíða og sjá til,“ segir Hanna Christel.
„Það eru einnig framkvæmdir í kringum húsið þar sem meðal annars á að veita læk í stokk undir götunni fyrir framan húsið og ég á eftir að heyra betur í bæjaryfirvöldum um hvenær þeim framkvæmdum lýkur.“
Hanna Christel segir að sem stendur séu hún og fjölskyldan í ágætu húsnæði og geta verið þar áfram um tíma.
„Við þurfum líka tíma til að jafna okkur á þessu andlega, við tökum eitt skref í einu“ segir hún.