HSA hlýtur jafnlaunavottun fyrst allra heilbrigðisstofnana hérlendis

„Það er algjört réttlætismál og sjálssögð krafa að greidd séu sömu laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Nú hefur Heilbrigðisstofnun Austurlands fengið vottun þess efnis og erum við öll afar stolt af henni,” segir Guðjón Hauksson forstjóri HSA, sem hefur nú fyrst allra heilbrigðisstofnana á Íslandi, hlotið jafnlaunavottun.



Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur nú formlega hlotið jafnlaunavottun, en Jafnréttisstofa hefur frá og með 9. maí síðastliðnum veitt stofnuninni heimild til að nota jafnlaunamerkið. Vottunin staðfestir að HSA uppfylli kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. 

Jafnlaunamerkinu er ætlað að vera gæðastimpill og hluti af ímynd HSA. Merkið staðfestir að stofnunin hefur komið sér upp ferli sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir í launamálum feli hvorki í sér beina eða óbeina kyndbundna mismunun, né launaójöfnuð af öðru tagi. Það var BSI á Íslandi sem er faggild skoðunarstofa og tilheyrir BSI group (British Standards Institution) sem framkvæmdi úttektina. 

„Þessi vottun rímar einnig fullkomlega við jafnréttisstefnu okkar og jafnréttisáætlun. Þrátt fyrir þennan áfanga mun HSA ekki slá slöku við þegar kemur að áframhaldandi vinnu að auknu jafnrétti,” segir Guðjón.

 

Ánægjulegur áfangi
Að jafnaði starfa um 350 starfsmenn hjá Hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands og þar af eru konur í miklum meirihluta, eða um 86%.
„Það er afar ánægjulegt að HSA hafi náð þessum áfanga sem verður liður í að tryggja launajafnrétti og um leið að auka og viðhalda starfsánægja og gera stofnunina að eftirsóttum vinnustað,” segir Emil Sigurjónsson, framkvæmdastjóri mannauðssviðs.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.