Héraðsskjalasafnið auglýsir eftir forstöðumanni: Ekki tilbúnið að sameina störfin í Safnahúsinu

safnahus_egs_0008_web.jpg
Starf forstöðumanns Héraðsskjalasafns Austfirðinga var í morgun auglýst laust til umsóknar. Stjórn safnsins telur rétt að finna sem fyrst nýjan forstöðumann til að tryggja samfellu í starfinu frekar en ráðast í hagræðingu í rekstrarstjórn í safnahúsinu.

Í tilkynningu frá stjórn Héraðsskjalasafnsins segir að um sé að ræða fullt starf. Auglýst er eftir einstaklingi sem hafi háskólapróf í námsgrein sem nýtist starfseminni og hafi reynslu af samstarfi og fjármálastjórn. Miðað er við að nýr forstöðumaður hefji störf í byrjun febrúar.

Stjórnin ákvað að fara þessa leið á fundi sínum í gærkvöldi frekar en skoða breytingar á rekstrarstjórn. Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs sendi stjórninni bréf með spurningu um hvort, þar sem núverandi forstöðumaður skjalasafnsins hefði sagt starfi sínu lausu, væri ástæða til að skoða „hvort breytingar á rekstrarstjórn gætu mögulega leitt til hagræðingar og jafnvel eflingar á starfseminni.“

Lagt er að skoðað verði hvort færa megi reksturs safnanna undir sameiginlegan forstöðumann. Í Safnahúsinu eru nú til húsa Bókasafn Héraðsbúa, Minjasafn Austurlands og Héraðsskjalasafnið.

Stjórn Héraðsskjalasafnsins telur ekki hægt að meta mögulegt hagræði af breyttri rekstrarstjórn fyrr en að undangenginni athugun á núverandi starfsemi. Til þess þurfi fyrst staðfestingu á vilja allra aðildarfélaga Héraðsskjalasafnsins en safnið er sjálfstæð skjalavörslustofnun í eigu sveitarfélaganna í Múlasýslum. 

„Minnt er á að safnið hefur lögbundnum skyldum að gegna við fleiri sveitarfélög en Fljótsdalshérað. Það er forgangsmál stjórnar Héraðsskjalasafnsins að gæta hagsmuna þess í samræmi við  stofnsamning. Því telur stjórn að ekki verði lengur beðið með að auglýsa eftir nýjum forstöðumanni safnsins enda mikilvægt að ekki verði rof í starfseminni sem yrði til þess að reynsla og þekking glataðist.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.