Orkumálinn 2024

Hálslón er öryggissvæði heiðagæsa

karahnjukar.jpg

Gæsavarp á vatnasvæði Kárahnjúkavirkjunar hefur aukist undanfarin ár. Lónið og girðingar í kring nýtast gæsinni sem öryggissvæði. Varpi hefur á móti seinkað þar sem það svæði sem áður kom fyrst undan snjó er nú undir vatni.

 

Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Náttúrustofu Austurlands sem unnin var fyrir Landsvirkjun. Þar er rakin varpþróunin áranna 2005-2010 og hún meðal annars borin saman við gögn frá 2000 þegar unnið var umhverfismat fyrir virkjunina. Rannsóknin nær langt út fyrir Hálslón því hún tekur til vatna- og áhrifasvæðis virkjunarinnar. Talið var við þverár og niður í byggð í Fljótsdal og Jökuldal.

Í ljós kom að heiðagæsavarpið hefur aukist um rúman helming frá árinu 2000 á vöktuðum hluta vatnasviðs Kárahnjúkavirkjunar. Mest hefur aukningin verið í Hnefilsdal. Heiðagæsavarp hefur reyndar almennt aukist á Austurlandi og benda skýrsluhöfundar á að aðstæður séu það góðar fyrir fuglana að það gæti aukist enn frekar.

Gæsunum hefur á móti fækkað á Eyjabökkum. Ekki er ljóst hver ástæðan er en því er velt upp í skýrslunni að svæði hafi verið orðið of þétt setið fyrir nokkrum árum og hluti fuglanna þar flutt sig annað.

Árið 2007 breyttist aðstaða gæsanna á svæðinu við Kárahnjúka töluvert þegar Hálslón var fyllt í fyrsta sinn. Áhrifin eru þríþætt. Gæsirnar nota það sem öryggissvæði. „Þær fljúga út á það verði þær fyrir styggð og hlaupa með ungana út á það yfir sumarið, fella fjaðrir á því og nota sem náttstað á haustin.“

Í öðru lagi  hefur varpið færst ofar og breiðst út um stærra svæði. Varpið hefur einnig þést en það gæti stafað af fleiri þáttum. Í þriðja lagi virðist varptíma hafa seinkað þar sem snjóa leysir seinna á nýju svæðunum heldur en á bökkum Jöklu þar sem gæsirnar verptu áður.

Þá virðist gæsin nýta sér sauðfjárvarnargirðingar með fram farvegi Jökulsár á Dal sem skjól. Gæsirnar sækja í að verpa sem næst henni. „Það má túlka þannig að hún finni vörn gegn ræningjum við girðinguna.“ 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.