Heitavatnslaust utan við Grjótá á Eskifirði

Heitavatnslaust verður í húsum utan við Grjótá á Eskifirði í dag föstudag vegna vinnu við tengingu á stofnlögn í tengslum við byggingu á brú yfir Lambeyrará.

Í tilkynningu á vefsíðu Fjarðabyggðar segir að skrúfað verður fyrir heitavatnið klukkan 09:00 og mun vinna standa yfir fram eftir degi. Áætlað er að verkið taki að minnsta kosti sjö klukkustundir. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.