Heitasti júlí aldarinnar á Austurlandi
„Þetta er hlýjasta júlíbyrjun aldarinnar um landið norðaustan- og austanvert og á Miðhálendinu, sú næsthlýjasta á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og á Suðausturlandi, en sú sjöttahlýjasta á Suðurlandi, við Faxaflóa og Breiðafjörð.“Þetta segir Trausti Jónsson veðurfræðingur á bloggi sínum á mbl.is. Þar fjallar hann um fyrstu tíu daga júlímánaðar. Fram kemur m.a. að einna hlýjast hefur verið fyrir norðan, meðalhiti á Akureyri er 14,0 stig, +3,2 stigum ofan meðallags 1991 til 2020 og +3,5 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Þetta er fimmta hlýjasta júlíbyrjun á Akureyri (við eigum daglegar tölur þaðan frá 1936), að því er segir á blogginu.
„Að tiltölu hefur verið hlýjast á fjöllum um landið norðaustan- og austanvert, hiti fyrstu tíu dagana er 7,4 stigum ofan meðallags við Upptyppinga. Kaldast að tiltölu hefur verið á Patreksfirði, þar er hiti -0,1 stigi neðan meðallags síðustu tíu ára - og í meðallagi á Garðskagavita,“ segir einnig.
„Eins og minnst var á á þessum vettvangi fyrir nokkrum dögum hefur 20 stiga hiti mælst einhvers staðar á landinu í óvenju marga daga í röð, þeir eru nú (11.júlí) orðnir 18 en metlengdin er 23 dagar.“
Mynd: Hitakortið á hádegi í dag.