Harðfiskurinn er dauður, lengi lifir harðfiskurinn

Rekstur harðfiskvinnslunnar Sporðs á Eskifirði hefur verið seldur til Borgarfjarðar eystra. Nýr eigandi á von á að framleiðsla besta harðfisks landsins færist smá saman á nýjan stað.


Í Morgunblaðinu birtist um helgina frétt um að rekstri Sporðs hefði alfarið verið hætt. Svo er ekki. „Ég held að þetta séu bara mistök, einhver misskilningur. Það eru auðvitað tvær hliðar á öllum málum. En við fjölskyldan erum hætt með þetta og Kári (Borgar Ásgrímsson) er búinn að kaupa þetta og flytur starfsemina þangað,“ segir Atli Börkur Egilsson eigandi Sporðs hf. 

Atli segir ástæða sölunnar vera einfalda. Hann er bara kominn með nóg. „Allt hefur sinn líftíma og ég mér fannst þetta bara orðið gott. Það er líka ánægjulegt að vita af því að harðfiskurinn fer á góðan stað,“ segir hann. 

Kári segist hafa frétt af því að fyrirtækið ætlaði að loka. „Mér fannst það bara ekki vera hægt enda er þetta besti harðfiskurinn sem er í boði,“ segir hann. 

Hann bætir við að það sé ekki á hreinu hvenær hann ætlar að koma þessu yfir á Borgarfjörð en það gerist líklega smánsaman. Hann segir ætlunina að koma upp aðstöðu á Borgarfirði. „Þetta er bara nýskeð en við gengum frá þessu fyrir helgi. Við eigum bara eftir átta okkur því hvernig best er að gera þetta,“ segir Kári. 
 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.