Hægt að fylgjast með loftgæðum á Austurlandi á nýjum vef

Gögn frá fjórum mælistöðvum á Austurlandi verða aðgengileg á nýjum vef sem opnaður var á vegum Umhverfisstofnunar fyrir jól þar sem hægt er að fylgjast með loftgæðum.

Þar má finna upplýsingar um magn brennisteinsdíoxíðs frá þremur mælistöðvum í Reyðarfirði: Hjallaleiru, Ljósá og Hólmum. Þá á einnig að vera hægt að nálgast gögn frá mæli í Seyðisfirði en þau eru ekki enn komin inn.

Um er að ræða umfangsmiklar endurbætur á eldri vef en þegar notendur koma inn á síðuna sjá þeir landakort af Íslandi með deplum. Litakóði á deplunum sýnir ástand loftgæða á hverri mælistöð. Með að smella á deplana má síðan nálgast ítarlegri upplýsingar fyrir hverja stöð og sjá töluleg gildi aftur í tímann.

Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir að opnun þessa nýja vefs sé fyrsta skrefið í að miðla upplýsingum úr nýju loftgæðaupplýsingakerfi (Airviro) sem starfsfólk stofnunarinnar hefur unnið að uppsetningu á síðasta árið.

Á næstu mánuðum munu bætast við fleiri valmöguleikar á síðuna og ber þá helst að nefna dreifilíkan loftmengunarefna á völdum svæðum á landinu. Dreifilíkanið reiknar út styrk loftmengunar hverju sinni út frá gagnagrunni um losun loftmengunarefna og veðuraðstæðum hverju sinni. Upplýsingar um styrk loftmengunarefna í mælistöðvum segja í raun aðeins til um stöðu loftgæða á þeim punkti þar sem mælistöðin er staðsett en með dreifilíkani verður hægt að sjá hvernig loftmengun dreifist undan vindi. Því verður hægt að sjá mismunandi styrk loftmengunar á öllu því svæði sem dreifilíkanið sýnir.

Gögnum um loftgæði á Íslandi er jafnframt miðlað á evrópska loftgæðavefinn þar sem má sjá stöðu loftgæða á Íslandi í samanburði við önnur lönd í Evrópu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.