Gauti Jóhannesson leiðir framboðslista Sjálfstæðisflokksins

Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi, leiðir framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar 18. apríl í sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Fljótsdalshéraðs, Djúpavogshrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar.

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna samþykkti einróma tillögu uppstillingarnefndar á fundi sínum á Seyðisfirði á sunnudag.

Gauti þakkaði uppstillingarnefnd og fundarmönnum fyrir hönd frambjóðenda það traust sem þeim er sýnt og þann einróma stuðning sem tillaga nefndarinnar fékk á fundinum.

„Það eru ótal sóknarfæri við sjóndeildarhringinn fyrir nýtt sameinað sveitarfélag. Nýrrar sveitarstjórnar er að stuðla að því að þau nýtist. Við þurfum einnig að tryggja farsæla sameiningu. Það eru engir betur til þess fallnir en Sjálfstæðisfólk að leiða starf nýrrar sveitarstjórnar – nú er bara að bretta upp ermarnar.“ sagði Gauti.

Eftirtalin skipa listann:

1. Gauti Jóhannesson, sveitastjóri og fyrrverandi skólastjóri, Djúpavogi
2. Berglind Harpa Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og MS í heilbrigðisvísindum og bæjarfulltrúi, Fljótsdalshéraði
3. Elvar Snær Kristjánsson, verktaki og bæjarfulltrúi, Seyðisfirði
4. Jakob Sigurðsson, oddviti og bifreiðarstjóri, Borgarfirði eystri
5. Guðný Margrét Hjaltadóttir, skrifstofustjóri, Fljótsdalshéraði
6. Oddný Björk Daníelsdóttir, rekstrarstjóri og bæjarfulltrúi, Seyðisfirði
7. Sigurður Gunnarsson, viðskiptafræðingur, Fljótsdalshéraði
8. Sigrún Hólm Þórleifsdóttir, viðskiptafræðingur, Fljótsdalshéraði
9. Ívar Karl Hafliðason, umhverfis- og orkufræðingur, Fljótsdalshéraði
10. Gunnar Jónsson, bóndi og bæjarfulltrúi, Fljótsdalshéraði
11. Svava Lárusdóttir, grunnskólakennari, Seyðisfirði
12. Skúli Vignisson, framkvæmdastjóri, Seyðisfirði
13. Ragnar Sigurður Kristjánsson, háskólanemi, Djúpavogi
14. Davíð Þór Sigurðarson, svæðisstjóri, Fljótsdalshéraði
15. Ágústa Björnsdóttir, rekstrarráðgjafi, Fljótsdalshéraði
16. Sylvía Ösp Jónsdóttir, leiðbeinandi í leik- og grunnskóla, Borgarfirði eystri
17. Sigfríð Hallgrímsdóttir, aðstoðarhótelstjóri, Seyðisfirði
18. Sigríður Sigmundsdóttir, matreiðslumaður, Fljótsdalshéraði
19. Karl Lauritzson, viðskiptafræðingur, Fljótsdalshéraði
20. Sóley Dögg Birgisdóttir, skrifstofustjóri, Djúpavogi
21. Sigvaldi H. Ragnarsson, bóndi, Fljótsdalshéraði
22. Anna Alexandersdóttir, verkefnisstjóri og formaður bæjarráðs, Fljótsdalshéraði

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.