Gangalokanir vegna slökkviæfinga næstu tvö kvöld
Lokað verður fyrir umferð um Norðfjarðargöng og Fáskrúðsfjarðargöng næstu tvö kvöld vegna æfingar slökkviliðs.Norðfjarðargöng verða lokuð á morgun, miðvikudaginn 30. nóvember en Fáskrúðsfjarðargöngin á fimmtudag 1. desember. Báðar lokanirnar gilda frá klukkan 20-23.
Hjáleið verður um Vattarnesveg meðan Fáskrúðsfjarðargöngin eru lokuð. Hægt verður að hleypa umferð í gegn, svo sem sjúkrabílum, ef þarf meðan æfingunni stendur.
Mynd: Jens Einarsson