Gamlir björgunarsveitarmenn hittast fyrir vestan

ImageJaxlarnir, hópur eldri björgunarsveitarfélaga, hittist á Patreksfirði eftir tvær vikur. Austfirðingar hafa jafnan tekið virkan þátt í samkomunum og undirbúningin þeirra.

 

Jaxlarnir hittast nú í fimmta sinn en fyrsta samkoman var haldin á Suðurnesjum 5. október 2002 og síðan annað hvert ár; í Stykkishólmi, á Húsavík og síðast á Hornafirði.
Öldunadeildin er hópur gamalla SVFÍ og Landsbjargarfélaga sem njóta þess að koma saman og gera eitt og annað sér og öðrum til skemmtunar.  Það er jafnframt eini tilgangur deildarinnar.

Fyrstu undirbúningsnefndina skipuðu, samkvæmt höfuðatriðabók:
Guðbrandur Jóhannsson, Höfn.
Magnús Ólafs Hansson, Bolungarvík.
Sigfús K. Magnússon, Garði.
Sigurður H. Guðjónsson, Sandgerði.

Þátttökuskilyrði eru rúm; að kannast við einhvern úr fyrstu undirbúningsnefndinni að viðbættum félögunum Baldri Pálssyni í Fellabæ, Inga Hans Jónssyni í Grundarfirði, Jóni Guðbjartssyni úr Bolungarvík, Eggert Stefánssyni frá Ísafirði, Áslaugu Þorvaldsdóttur í Borgarnesi og Hrönn Káradóttur á Húsavík.

Mótsstaður er Patreksfjörður laugardaginn 16 október 2010 kl. 09.30. Mælt er eindregið með því að gestir mæti á föstudegi.

Útbúnaður sem þarf:
- gamla góða skapið
- útivistarfatnaður
- baðföt

Hægt er að panta gistingu á Patreksfirði og nágreni.
Síðan verður dagskrá á laugardegi sem verður í höndum heimamanna á Patreksfirði. Heimför er áætluð á sunnudegi eða eftir hentugleikum.
Þátttaka tilkynnist á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 490 2301.

Dagskrá.
Kl. 09.30    Farið með rútu í Selárdal í Ketildölum með leiðsögn.
Kl. 12.30    Súpa og brauð á Vegamótum á Bíldudal.
Kl. 14.00    Skoðunarferð í Skrímslasetrið og tónlistarsafn Jóns Kr. Ólafssonar, Melódíur minninganna á Bíldudal.
Kl. 16.00    Ekið til Tálknafjarðar og farið í Pollinn.
Kl. 17.00    Ekið til Patreksfjarðar.
Kl. 17.30    Fundur í Lávarðadeild Björgunarsveitarinnar Blakks á Patreksfirði.
Kl. 20.00    Sameiginlegur kvöldverður.
Auðvitað áskiljum við okkur rétt til breytinga á dagskrá og tímaáætlunum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.