Fimm með virk COVID smit á Austurlandi

Fimm eru enn með virk COVID smit á Austurlandi, allt landamærasmit. Öll eru þau í einangrun en við ágæta heilsu. Vonir standa til að einhver þeirra verði útskrifuð fljótlega.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi. þar segir að bólusetning hófst að nýju í gær og ljúkí í næstu viku. Rétt um fjögur hundruð íbúar Austurlands verða þá bólusettir fyrir veirunni af um tíu þúsund. Enn er því nokkuð í land.

„Við erum þó lögð af stað öruggum skrefum og mikilvægt að gleðjast yfir því þar sem bólusettir hafa verið okkar viðkvæmustu íbúar og hluti framlínufólks. Næstu skref tökum við svo af sama öryggi, æðruleysi og festu og við höfum gert hingað til. Þannig komumst við í gegnum þetta saman,“ segir í tilkynningunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.