Fasteignagjöld hækkað um 34% austanlands
Meðaltal fasteignagjalda á fjórum matssvæðum á Austurlandi hefur hækkað um 32 prósent frá árinu 2014 til 2022 samkvæmt nýrri skýrslu Byggðastofnunar. Langmest á Vopnafirði.
Þetta er meðal þess sem lesa má úr samanburðarskýrslu stofnunarinnar á fasteignagjöldum heimilanna 2022 sem nýkomin er út.
Þar gefur stofnunin sér tilteknar viðmiðunarfasteignir til að fá sem gleggsta mynd til samanburðar yfir allt landið. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m² að grunnfleti og 476 m³ á 808 m² lóð. Fasteignagjöld eru reiknuð út af Byggðastofnun samkvæmt álagningarreglum ársins 2022 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi, út frá fasteignamatinu sem Þjóðskrá reiknar og gildir frá 31. desember 2021. Útreikningar voru gerðir fyrir 99 matssvæði í 50 sveitarfélögum.
Matssvæðin sem um ræðir hér austanlands eru Vopnafjörður, Seyðisfjörður, Egilsstaðir og Neskaupstaður en yfir línuna reyndust fasteignagjöld á þessum fjórum stöðum vera 288 þúsund krónur á viðmiðunareign árið 2014 en er í dag 379 þúsund krónur.
Sé kafað dýpra í skýrsluna kemur í ljós að fasteignagjöld per viðmiðunareign á Vopnafirði hafa hlutfallslega hækkað um 70 prósent á þessu tímabili, 41 prósent í Neskaupstað og 36 prósent á Egilsstöðum. Gjöldin hafa hins vegar lækkað hjá Seyðfirðingum um 9 prósent.
Frá Vopnafirði. Þar hafa fasteignagjöld hækkað mest síðustu árin. Mynd GG