Farið fram á nauðungarsölu á Fagradalsbraut 25

fagradalsgbraut25.jpg
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað hefur farið fram á að Fagradalsbraut 25 verði seld á nauðungarsölu. Illa hefur gengið að halda úti starfsemi í hinu stóra verslunarhúsi sem var meðal síðustu verka Malarvinnslunnar.

Beiðnin um nauðungarsöluna kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Um er að ræða um 1000 fermetra verslunarhús sem lokið var við að byggja árið 2008. 

Beiðnin nær til fjögurra bila af fimm í húsinu sem eru í eigu Fagradalsbrautar 25 ehf. sem aftur er í eigu Bíldekks ehf. Í ársreikningi fyrir árið 2011 kemur fram að eigið fé félagsins í lok þess árs hafi verið neikvætt um 7,6 milljónir króna. Félagið eignaðist húsnæðið fyrir um 40 milljónir króna árið 2010 af þrotabúi Malarvinnslunnar. Hvorki húsnæðið né lóðin voru þá fullkláruð en talsvert hefur verið unnið í húsnæðinu og lóðinni síðan.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.