Einn í sóttkví

Aðeins einn einstaklingur er í sóttkví á Austurlandi þessa stundina. Verið er að semja við Færeyinga um að taka við skimun farþega í Norrænu.

Einn einstaklingur er í sóttkví á Austurlandi en mun losna úr henni gangi allt að óskum, samkvæmt upplýsingum frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar svæðisins.

Allir aðrir sem hafa verið í sóttkví eru lausir úr henni, en níu einstaklingar voru settir í hana skömmu fyrir síðustu mánaðamót eftir að upp komu smit á höfuðborgarsvæðinu.

Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Austurlands tóku í gær sýni úr tæplega 500 farþegum um borð í Norrænu og var því verki lokið áður en ferjan kom til hafnar á Seyðisfirði í gærmorgun.

Í fréttum RÚV í gær sagði Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, að verið væru að semja við færeysk yfirvöld að sjá framvegis um skimanir um borð í ferjunni. Það muni létta á íslensku heilbrigðiskerfi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.