Orkumálinn 2024

Einar Rafn: Versta mál að þurfa að loka Sundabúð

ImageEinar Rafn Haraldsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands, segir það neyðarúrræði að þurfa að loka hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafirði. Annað sé erfitt þar sem stofnunin þurfi að skera niður um tæpan hálfan milljarð á næsta ári.

 

„Meðalaldur á hjúkrunarheimilinu er mjög hár, 87 ár, og það er hið versta mál að þurfa að skera þarna niður. En það er ekki búið að taka endanlega ákvörðun þar sem verið er að endurskoða fjárlögin. Vonandi finna stjórnvöld flöt á þessu þannig að hægt verði að halda úti þjónustu í byggðarlaginu. En eins og staðan er núna eru ekki aðrar lausnir í sjónmáli,“ segir Einar Rafn í samtali við Pressuna.

Eins og staðan sé í dag þurfi HSA að borga 40 milljónir króna með Sundabúð á næsta ári. Ekki hefur verið ákveðið hvert heimilsmenn verði fluttir. Einhverjir geti fengið heimahjúkrun en mögulegt sé að flytja aðra í Egilsstaði eða á Seyðisfjörð.  Það sé þó engin óskastaða.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.