Djúpavogsskóli stenst ekki kröfur um aðbúnað
Skólahúsnæði Djúpavogsskóla er orðið of lítið fyrir þá starfsemi sem þar á að vera og uppfyllir ekki kröfur um aðbúnað nemenda og starfsmanna.Þetta kemur fram í fundargerð frá síðasta fundi heimastjórnar Djúpavogs. Þar segir einnig að heimastjórn Djúpavogs telur einsýnt að ekki verði hægt að halda uppi eðlilegu skólastarfi í Djúpavogsskóla á komandi vetrum, vegna plássleysis og viðhaldsþarfar á eldri hluta skólans.
"Heimastjórn leggur á það mikla áherslu að mörkuð verði framtíðarstefna um uppbyggingu skólahúsnæðis og skólalóðar og að tryggðir verði fjármunir til uppbyggingar í fjárhagsáætlun næsta árs," segir í fundargerðinni.