Orkumálinn 2024

Brunasár eftir vinnuslys í kerskála Alcoa Fjarðaáls

Starfsmaður Alcoa Fjarðaáls var fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugi á miðvikudagskvöld eftir að hafa brennst í vinnuslysi kerskála álversins.

Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu varð sprenging í deiglu, sem notuð er við að flytja raflausn með þeim afleiðingum að starfsmaðurinn fékk brunasár.

Hann var fyrst fluttur á sjúkrahúsið í Neskaupstað til rannsóknar en þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur til frekari aðhlynningar. Líðan hans er eftir atvikum.

Rannsókn á slysinu er hafin. Smári Kristinsson, framkvæmdastjóri framleiðslu, segir að þegar hafi verið brugðist við með breyttu verklagi og auknum forvörnum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.