Brotist inn í bíla á Egilsstöðum

Brotist var inn í nokkra bíla á Egilstöðum síðasta sunnudag, þeir sem þar voru að verki voru handteknir og telst málið upplýst.

logreglubill1.jpgSamkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Egilsstöðum var brotist inn í eina fjóra bíla síðasta sunnudag á Egilsstöðum.  Tveir bílanna stóðu við Íþróttahúsið á Egilsstöðum, hafði eitt fórnarlambið brugðið sér um hábjartan dag í badminton og kom að bílnum með brotna hliðarrúðu eftir tæplega tveggja tíma stans í Íþróttahúsinu. 

Brotist var inn í alla bílana um hábjartan dag. Þrír menn af erlendu bergi brotnir voru handteknir í framhaldinu sem játuðu á sig verknaðinn og er helftin af þýfinu er komið til skila.  Mennirnir sem handteknir voru eru búsettir í Reykjavík en taka annað slagið svona ,,hringferðir" til að stunda þessa yðju. Áður en þér létu bera niður á Egisstöðum höfðu þeir verið til ama og vandræða á Akureyri þar sem þeir fóru um með gripdeildum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.