Borgfirskt verkefni valið til þátttöku í Til sjávar og sveita

Æðarkollur, verkefni um fullvinnslu æðardúns á Íslandi, er eitt af þeim tíu sem valin hafa verið til þátttöku í viðskiptahraðlinum Til sjávar og sveita.

Þetta er í fyrsta sinn sem hraðallinn er haldinn en markmið hans er að aðstoða frumkvöðla við að byggja upp fyrirtæki í landbúnaði og sjávarútvegi.

Markmiðið er að hraða framgangi hugmyndanna og í níu vikur fá forsvarsmenn fyrirtækjanna tækifæri til að þróa hugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila innan landbúnaðar og sjávarútvegs og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.

Alls bárust yfir 70 umsóknir um þátttöku og munu flestar þeirra hafa komið frá Austurlandi. Tuttugu umsækjendur voru teknir í viðtal og tíu valdir til þátttöku, en sem fyrr segir er verkefnið frá Borgarfirði það eina af Austurlandi að þessu sinni.

Eftirtalin tíu fyrirtæki taka þátt í Til sjávar og sveita 2019:

ArcanaBio
Ný háhraða tækni sem útbýr DNA greiningarpróf, allt frá matvælaiðnaði yfir í líftækni

Álfur Beer
Bruggar bjór úr kartöfluhýði sem færi annars til spillis

Beauty by Iceland
Snyrtivörur úr gulrótum og rófum sem færu annars til spillis

Feed The viking
Sprotafyrirtæki sem starfar með það markmið að auka virði íslenskra matvæla með nýsköpun og öflugri markaðssetningu

Ljótu kartöflurnar
Framleiðsla á kartöfluflögum úr annars flokks íslensku hráefni sem annars yrði fargað

Stafræn veiðibók
Færa veiðibókina af pappírnum upp í skýin

Pure Natura
Framleiðir hágæða íslensk fæðuunnin bætiefni úr lambainnmat og íslenskum jurtum

Tracio
Næsta kynslóð rekjanleika og upplýsingakerfa sem á nýjan hátt eykur skilvirkni og traust í virðiskeðju matvæla.

Urtasjór
Framleiðsla á jurtabragðbættu og kolsýrðu, steinefnaríku drykkjarvatni unnið úr sjó

Æðarkollur
Fullvinnsla æðardúns á Íslandi

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.