Blængur er á leið í Barentshafið
Frystitogarinn Blængur er nú á siglingu í Barentshafið. Togarinn kom til hafnar í Neskaupstað fyrir helgina með aflaverðmæti upp á um 170 milljónir kr eftir veiðar víða á Íslandsmiðum. Um var að ræða tæplega 400 tonn upp úr sjó.Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að Blængur hafi lagt af stað á þriðjudag. Theodór Haraldsson skipstjóri segir í samtali á vefsíðunni að það sé ávallt spennandi verkefni að veiða í Barentshafinu.
Í fyrra fór Blængur þangað tvisvar. Í fyrra sinnið eftir sjómannadag og í hið síðara í lok október. Í báðum tilvikum var um 40 daga túr að ræða. Í fyrri túrnum veiddust 1440 tonn upp úr sjó en í þeim síðari 560 tonn.
"Veiði í Barentshafi hefur verið mjög góð í júní og júlí síðastliðin ár," segir Theodór.
Mynd: Blængur á Vestfjarðamiðum. Mynd Atli Þorsteinsson/SVN