Bein útsending frá framboðsfundi
Hægt er að fylgjast með framboðsfundi, sem hefst í Valaskjálf klukkan 20:00 með fulltrúum allra framboða í Norðausturkjördæmi í beinni útsendingu á YouTube-rás Austurfréttar.Til fundarins mæta Líneik Anna Sævarsdóttir frá Framsóknarflokki, Eiríkur Björn Björgvinsson frá Viðreisn, Njáll Trausti Friðbertsson frá Sjálfstæðisflokki, Jakob Frímann Magnússon frá Flokki fólksins, Haraldur Ingi Haraldsson frá Sósíalistaflokknum, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson frá Miðflokknum, Björgvin E. Vídalín Arngrímsson frá Frjálslynda lýðræðisflokknum, Einar Brynjólfsson frá Pírötum, Hilda Jana Gísladóttir frá Samfylkingunni og Jódís Skúladóttir frá Vinstri grænum.
Fundarstjóri er Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls og fulltrúi í heimastjórn Fljótsdalshéraðs.
Hægt er að senda inn spurningar á meðan fundinum stendur hér á Menti.com. Kóði fundarins er: 8917 2926 og bein slóð: https://www.menti.com/3t1jgsiro6