Beðið eftir niðurstöðum sýnatöku á Reyðarfirði
Beðið er eftir niðurstöðum sýnatöku vegna Covid-19 smita á Reyðarfirði í gær áður en ákvörðun um næstu skref verða tekin.Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi fundar um stöðuna klukkan 9:30 í dag. Þar verður farið yfir niðurstöðurnar og fengnar upplýsingar frá smitrakningateymi um stöðu smitrakningar og hvert hún hefur leitt.
Um 250 sýni voru tekin af fólki í bænum í gær eftir að tíu smit voru staðfest í leik- og grunnskóla bæjarins. Grunnskólanum var lokað strax í fyrradag og leikskólanum í gær. Þeir eru enn lokaðir enda stóð til að hafa starfsdag í þeim í dag.
Frekari upplýsingar um stöðuna og næstu skref er að vænta eftir fundinn. Samkvæmt upplýsingum frá aðgerðastjórninni er vonast til að hratt hafi tekist að komast í veg fyrir útbreiðslu smitsins, líkt og reyndin varð þegar smit greindist á leikskólanum á Seyðisfirði í síðasta mánuði.