Austurbrú kaupir SparAustur

Austurbrú hefur fest kaup á smáforritinu SparAustur og ráðið Auðun Braga Kjartansson, frumkvöðul og höfund hugverksins, til starfa svo vinna megi áfram að þróun og innleiðingu þess.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Forritinu var hleypt af stokkunum í byrjun maí en það veitir notendum vildarkjör hjá veitingastöðum, verslunum og þjónustuaðilum á Austurlandi, með það að markmiði að auka sýnileika fyrirtækja á Austurlandi og koma réttum upplýsingum hratt og örugglega til viðskiptavina.

Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, segir kaupin á SparAustur og ráðningu Auðuns mjög heppilega. Það sé sumar og fjöldi ferðamanna í landshlutanum og mikilvægt að upplýsingagjöf til þeirra - og annarra íbúa - sé hraðvirk og traust:

„Það skiptir máli fyrir fyrirtækin á svæðinu að koma upplýsingum á framfæri með öllum mögulegum leiðum,“ segir Jóna Árný. „Vonandi mun fjöldi Íslendinga leggja leið sína austur í sumar og þá skiptir máli að þeir fái allar þær upplýsingar sem þeir þurfa til að njóta lífsins á Austurlandi. Og þetta gildir að sjálfsögðu um alla íbúa Austurlands sem vonandi verða duglegir að ferðast um fjórðunginn í sumar.“

Forritið er frítt bæði fyrir notendur og samstarfsaðila Austurbrúar sem eru rúmlega eitt hundrað talsins. Í tilkynningu segir að SparAustur sé góð viðbót við þau verkfæri sem Austurbrú hafi þróað fyrir samstarfsaðila sína.

Auðun Bragi Kjartansson, stofnandi SparAustur.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.