Austfirskir lögreglumenn: Hroki að læra ekki af mistökum annarra

ImageAustfirskir lögreglumenn harma að íslensk stjórnvöld hafi ekki farið að ráðleggingum erlendra sérfræðinga og skorið niður framlög til löggæslu og félagslegra úrræða. Nauðsynlegt sé að læra af mistökum annarra.

 

Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Lögreglufélags Austurlands.  Þar segir:

„Efnahagur Íslendinga hrundi í október 2008.  Ekki hefur tekist að benda á það með óyggjandi hætti hverjum efnahagshrunið er að kenna, en þó hefur tekist að benda á ýmsa þætti sem varð þess valdandi að svo fór sem fór.

Bent hefur verið á það að ef Íslendingar hefðu hlustað á og lært af erlendum vinaþjóðum sem vöruðu okkur við allt of stóru bankakerfi, hefði ekki farið sem fór.

Með öðrum orðum... Við héldum að við kynnum allt betur en aðrir en komust að því á all harkalegan hátt að það var rangt mat.

Þegar ljóst var að Íslendingar þyrftu að kljást við þann gífurlega skuldavanda sem hrunið olli fengum við nokkur góð ráð frá vinaþjóðum okkar sem höfðu gengið í gegnum álíka reynslu.  Eitt ráðið var að skera ekki niður fjárframlög til löggæslu og félagslegra úrræða. 

Við höfum ekki farið eftir þessum ráðum og það er ekkert sem bendi til þess að það standi til.

Lögreglufélag Austurlands harmar þá stefnu stjórnvalda að veikja framkvæmdavald sitt með þeim hætti sem nú er gert þrátt fyrir aðvaranir annarra þjóða.  Félagið hvetur alþingismenn til að nýta sér þekkingu annarra þjóða í þeirri erfiðu vinnu sem endurreisn efnahagskerfisins er og minnast þess að það er hroki að halda að við vitum og kunnum alla hluti betur en aðrir.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.