Átak gegn ölvunarakstri í desember

Lögreglan á Austurlandi mun í desember leggja sérstaka áherslu á eftirlit með ölvunar- og fíkniefnaakstri. Að undanförnu hefur verið átak í gangi vegna vanbúinna ökutækja.

Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að undanfarnar vikur hafi 127 ökumenn verði stöðvaðir fyrir að vera með ljósabúnað í ólagi. Þá voru nokkrir stöðvaðir fyrir að skafa ekki nógu vel af framrúðum.

Í yfirlitinu kemur fram að 23 hafi verið kærðir fyrir að keyra of hratt og tveir fyrir að aka undir áhrifum áfengis og vímuefna. Í desember hyggst lögreglan leggja sérstaka áherslu á eftirlit með akstri undir áhrifum vímuefna og mega ökumenn búast við að vera stöðvaðir ef svo ber undir.

Þá voru fimm kærðir fyrir stöðvunarskyldubrot og tveir fyrir að leggja í stæði fatlaðra.

Lögreglan hvetur jafnframt foreldra til setja endurskinsmerki á útifatnað barna sinna en það hefur verið nokkuð áberandi á sumum stöðum að börn eru ferðinni án þess að vera með endurskinsmerki og sjást þar af leiðandi illa í umferðinni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.