Orkumálinn 2024

Áminning um árvekni

Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur stofnanir og fyrirtæki til að halda áfram árvekni og skipulagi sem komið hafi verið á til varna gegn Covid-19 veirunni. Tveggja metra reglan muni vara áfram næstu vikur.

Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnarinnar í dag.

Þá eru samkomuhaldarar útihátíða og tónleika hvattir til að kynna sér vel reglur og leiðbeiningar sem í gildi eru, bæði hvað varðar fjölda þeirra sem mega koma saman á einum stað og tveggja metra regluna.

Síðast greindist smit á Austurlandi 9. apríl. Ekkert virkt smit er þekkt í fjórðungnum í dag. Sex eru í sóttkví, tveimur fleiri en í gær.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.