Algjört metár hjá línubátum Loðnuvinnslunnar

Alls komu línubátar Loðnuvinnslunnar, Sandfell og Hafrafell, að landi á síðasta ári með rúmlega fjögur þúsund og níu hundruð tonn af afla. Bátarnir aflahæstir slíkra báta á landsvísu.

Þetta fjarri því fyrsta skiptið sem þessir bátar eru með þeim aflahæstu á ársgrundvelli. Sandfell hefur toppað aflalistann allar götur frá því hann kom til Fáskrúðsfjarðar í febrúar 2016 og Hafrafell verið númer tvö til þrjú á lista yfir aflahæstu línubáta landsins síðustu árin.

Aðspurður um hugsanlegar ástæður þess að tveir bátar á Fáskrúðsfirði eru undantekningarlítið að fiska meira en aðrir línubátar nefnir Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, fjórar ástæður þar helstar.

„Fyrir það fyrsta er bátarnir báðir mannaðir miklu úrvalsfólki og lítið verið um mannabreytingar. Í öðru lagi gerum við og frystum okkar eigin beitu úr eins fersku hráefni og fæst. Þriðja ástæðan er að bátarnir eru afar góðir sjóbátar almennt og síðast en ekki síst sú staðreynd að við sinnum viðhaldi þeirra vel. Þeir fara einu sinni á ári báðir í slipp ár sem merkir að bilanir hvers kyns eru litlar sem engar sem aftur þýðir að þeir geta sótt linnulítið á miðin.“

Til marks um hversu fengsælir Hafrafell og Sandfell voru á liðnu ári má glögglega sjá á árslista Aflafrétta að Sandfell veiddi tæplega 600 tonnum meira en sá bátur sem varð þriðji aflahæstur. Hafrafell veiddi rúmlega 200 tonnum meira og báðir lönduðu þeir mun oftar en velflestir aðrir bátar af þessari stærðargráðu.

Sandfellið og Hafrafellið í höfn á Stöðvarfirði. Báðir bátar hafa gefið vel fyrir sína útgerð síðustu árin. Mynd: Þorgeir Baldursson

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.