Aðeins tvö virk smit eftir

Aðeins tveir einstaklingar, af þeim átta sem greinst hafa með covid-19 veiruna á Austurlandi, eru enn í einangrun vegna smitsins. Sex hafa nú náð bata.

Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Ekkert nýtt smit hefur komið upp undanfarinn sólarhring.

Tveir bættust við í sóttkví frá í gær en þeir voru að koma erlendis frá. Í sóttkví á svæðinu eru 23.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.