Orkumálinn 2024

Íbúaþing í Breiðdalshreppi: Fleiri atvinnutækifæri eru málið!

bdalsvik ibuathing alta 2Það vantar fleiri atvinnutækifæri á Breiðdalsvík til að renna stoðum undir byggðina og möguleikarnir eru fjölmargir. Þetta voru einróma skilaboð íbúaþings sem haldið var helgina 2. – 3. nóvember með um 50 þátttakendum.
Ýmsar hugmyndir komu fram um nýtingu frystihússins, sem nú stendur að mestu autt. Þátttakendur sáu fyrir sér að húsinu mætti skipta upp í rými fyrir margskonar starfsemi, á vegum fyrirtækja, einstaklinga og Breiðdalshrepps. Þá var rædd og útfærð hugmynd um slipp fyrir báta undir 30 tonnum.

Meðal fleiri hugmynda um atvinnusköpun má nefna fjölbreytta matvælavinnslu og merkingu á afurðum úr héraði, ferðaþjónustu, með áherslu á afþreyingu sem byggir á sérstöðu svæðisins, menningu, sögu og náttúru. Rætt var um stuðning við frumkvöðla, t.d. með frumkvöðlasetri og frumkvöðlaviku, eflingu Breiðdalsseturs, með áherslu á jarðfræði, málvísindi og sögu.

Fram fór umræða um leiðir til að fjölga opinberum störfum, sem hefur fækkað úr 12 í tvö á rúmum 30 árum. Einnig var rætt um uppbyggingu Einarsseturs, til minningar um sr. Einar Sigurðsson, sem var eitt afkastamesta ljóðskáld þjóðarinnar og ættfaðir allra núlifandi Íslendinga.

Lögð var áhersla á góðar samgöngur og áhugi á eflingu almenningssamgangna, með auknu samstarfi þeirra sem að rútuferðum standa í dag. Kallað var eftir því að loforð yfirvalda um að klára vegagerð í botni Breiðdals verði endurvakið og að í stað uppbyggingar á veginum um Öxi, verði stefnt að gangnagerð undir Breiðdalsheiði og Berufjarðarskarð.

Lítill áhugi á sameiningu

Kortlagðir voru kostir og gallar við sameiningu við önnur sveitarfélög, annars vegar Fjarðabyggð og hins vegar Fljótsdalshérað, en niðurstaðan var sú að lítill áhugi er á sameiningu.

Umhverfismál og umgengni voru Breiðdælingum ofarlega í huga og mikill vilji til að halda ásýnd sveitarfélagsins góðri. Gott göngustígakerfi er á Breiðdalsvík og kom fram áhugi á að bæta stígana, merkja og gera göngukort.

Ákveðið var að stofna „skemmtinefnd Breiðdals", til að stuðla að aukinni samveru og var m.a. rætt um nýtingu á íþróttahúsinu og sundlauginni og bæjarhátíð.

Ungir Breiðdælingar sem eru búsettir utan Austurlands vegna náms og starfa, mynduðu hóp á Facebook og komu þannig ýmsum hugmyndum inn í umræðuna. Ein þessara hugmynda var rædd í þaula á þinginu og líklegt að hún verði að veruleika. Ekki er rétt að greina frá henni að svo stöddu, svo henni verði ekki stolið!

Þingið var hluti af verkefninu „Breiðdælingar móta framtíðina" á vegum Byggðastofnunar, í samstarfi við Breiðdalshrepp, Austurbrú, SSA og íbúa, en Byggðastofnun vinnur nú að sambærilegum verkefnum á þremur öðrum stöðum í svokölluðum „Brothættum byggðum". Umsjón með íbúafundum og þingum er í höndum Ildis, þjónustu og ráðgjafar.

Í lok þings lýstu þátttakendur ánægju með þann samhljóm sem skapaðist á þinginu og lögðu áherslu á að halda áfram á að leggja saman kraftana, því eins og það var orðað á þinginu: „Hver er sinnar „kæfu" smiður en menn þurfa stundum stuðning og samvinna er frekar til þess að allir vinna".

Verkefnisstjórn mun nú vinna frekar úr skilaboðum þingsins og marka stefnu um eftirfylgni, sem síðan verður kynnt á fundi með íbúum, í janúar.

bdalsvik ibuathing alta 1bdalsvik ibuathing alta 3bdalsvik ibuathing alta 4 web

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.