Orkumálinn 2024

Ákærður fyrir að draga annan mann út úr bíl á hárinu

logreglanLögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að hafa dregið rúmlega tvítugan karlmann á hárinu út úr bifreið sinni. Sá maður er á móti ákærður fyrir að hafa slegið árásaraðilann.

Mennirnir tveir lentu í stympingum utan við íbúð eldri mannsins í fyrrahaust. Sá eldri er ákærður fyrir að hafa tekið í hár þess yngri og dregið hann út úr bíl sínum, tekið hann hálstaki og síðan löðrungað hann þannig hann fékk glóðarauga.

Sá yngri er ákærður fyrir að hafa svarað fyrir sig með að hafa nefbrotið þann eldri með hnefahöggi. Ákærunni fylgir einkaréttarkrafa þar sem farið er fram á rúmar 400.000 krónur í skaðabætur fyrir höggið.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.