Eiðar: Þjónar það flugöryggi að ljósin séu biluð langtímum saman?

eidar_langbylgjumastur_web.jpg Íbúar á Eiðum eru óhressir með ljósabúnað í langbylgjumastri Ríkisútvarpsins á Eiðum sem sé alltaf í ólagi og valdi þeim óþægindum. Annað hvort verði að setja upp búnað sem virki eða finna mastrinu annan stað fjær mannabyggðum.

Þetta kemur fram í áskorun sem fjórtán íbúar á Eiðum hafa undirritað og send er sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði, RÚV, Flugmálastjórn og ISAVIA. Þar segir að ljósabúnaður í mastri langbylgjusendisins hafi nær stöðugt verið í ólagi undanfarinn áratug.

„Viðgerðir eins og þær sem fóru fram a.m.k. í tvígang á nýliðnu ári virtust ekki duga nema í örfáar vikur. Jafnvel ekki heilan mánuð.“

Bilun lýsir sér þannig að ljósin fara úr takti og byrja að senda út leiftur á fullu afli eftir að dimmt er orðið. „Þetta er vægast sagt hvimleitt og truflandi.“

Ljósunum var komið fyrir á sínum tíma að kröfu flugmálayfirvalda. „Það er því vægast sagt undarlegt ef það þjónar flugöryggi þegar sum ljósanna eru biluð langtímunum saman, meðan hin senda út á allt of miklum styrk og úr takti.“

Skorað er á flugmálayfirvöld, RÚV og Fljótsdalshérað að finna varanlega lausn á málinu. „Við sem búum hér í næsta nágrenni við þetta mannvirki unum þessu ekki lengur. Enn ein viðgerðin sem dugar ekki nema í mánuð er engin lausn.

Annað hvort verður að skipta um búnað og setja upp annan sem uppfyllir þær kröfur sem gera þarf og er stöðugur, eða hreinlega að þessu mannvirki í heild sinni verður að finna annan stað fjær mannabyggð.“

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.