Orkumálinn 2024

Erfitt að samþykkja heillaóskir til manns sem virðir ekki mannréttindi

thorbjorn_pafabref.jpgÞorbjörn Rúnarsson, íbúi á Egilsstöðum, er ósáttur við að forseti Íslands skuli hafa sent nýjum páfa heillaóskaskeyti í tilefni kjörs hans. Erfitt sé að sætta sig við slíkar óskir til manns sem virði ekki mannréttindi.

Opið bréf sem Þorbjörn birti á Facebook-síðu sinni í kvöld hefur vakið mikla athygli. Í bréfinu, sem stílað er á Francis fyrsta páfa sem heitir að skírnarnafni Jorge Mario Bergolio, lýsir Þorbjörn því yfir að heillaóskir þær sem lýðræðislega kjörinn forseti Íslandi hafi sent séu ekki sendar í hans nafni.

Í bréfinu segir Þorbjörn að stefnu kaþólsku kirkjunnar gegn getnaðarvörnum og samkynhneigðum sé „engan vegin hægt að styðja.“ Því miður gefi yfirlýsingar páfans í fjölmiðlum enga von um að hún breytist. 

„Ég á bágt með að samþykkja heillaóskir til manns sem treður mannréttindi stórs hluta jarðarbúa fótum á þennan hátt,“ sagði Þorbjörn í samtali við Austurfrétt í kvöld.

Þorbjörn endar bréfið á áskorun til páfans um að endurskoða þessa stefnu. Vegna hennar neyðist hann til að draga til baka þær heillaóskir sem sendar hafi verið í hans nafni.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.