Fjarðarheiði: Snérust í hálfhring þegar snjóplógurinn þrusaði aftan á bílinn

fjardarheidi crash 18032013 il snyrtUngmenni á leið yfir Fjarðarheiði í morgun urðu fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að snjóruðningstæki keyrði aftan á bíl þeirra þar sem hann sat fastur. Afleitt skyggni var á heiðinni í morgun.

„Við festumst þarna svo þrusaði plógurinn bara beint aftan á skottið og ýtti bílnum einhvern veginn út á hlið,“ segir Ingibjörg Lárusdóttir sem ásamt fjórum vinum sínum fór frá Seyðisfirði og ætlaði í Menntaskólann á Egilsstöðum á tíunda tímanum í morgun.

„Höggið kom aftan á bílinn vinstra megin og snérist í hálfhring. Okkur brá öllum rosalega mikið en við höfðum mestar áhyggjur af því að einhver hefði slasast. 

Ég og vinkona mín vorum í framsætunum og hlupum beinustu út úr bílnum til að athuga hvort það væri ekki í lagi með krakkana aftur í.“

Krakkarnir voru í sambandi við aðra vinkonu á sömu leið. Sú lenti í því að keyrt var aftan á hana á heiðinni. Hóparnir hittust á slysstað þangað sem lögreglan var einnig mætt en að því búnu ákvað hópur Ingibjargar að snúa við og halda heim á Seyðisfjörð.

Á leiðinni til baka festust þau og þá kom plógurinn aftan undir bílinn. Ingibjörg segir að færð og skyggni hafi verið afleitt á heiðinni í morgun.

„Við höfðum eiginlega ekki séð neitt mest alla leiðina. Á vef Vegagerðarinnar stóð að það væri skafrenningur og þæfingur. Rétt á meðan bíllinn sat fastur var heiðinni lokað. Þegar við höfðum losað hann var hún opnuð á ný og bara talað um skafrenning og þæfing.“

Fimmmenningarnir fóru í athugun á heilsugæslunni á Seyðisfirði en töldust öll ómeidd. Bíllinn er hins  vegar talsvert mikið skemmdur.

„Skottið á bílnum er komið í algjöra klessu og rúðurnar brotnar enda var snjótækið bara komið inn í skottið á bílnum. Það munaði litlu að það hefði farið í krakkana sem sátu aftur í.“

Útsýnið úr snjóruðningstækinu á meðan verið var að losa bílinn. Mynd: Ingibjörg Lárusdóttir

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.