Hvaðan á að þjónusta olíuleit? Vopnfirðingum þykir hart og leitt að fá ekki meiri stuðning

thorunn_egilsdottir.jpg

Vopnfirðingum þykja það mikil vonbrigði að sveitarfélögin Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað ætli að markaðssetja sveitarfélögin tvö sem sameiginlegt svæði fyrir þjónustu við hugsanlega olíuleit á Drekasvæðinu. Vopnfirðingar höfðu vonast eftir stuðningi annarra austfirskra sveitarfélaga við áframhaldandi uppbyggingu þeirra og Langanesbyggðar fyrir slíka miðstöð.

 

Samkeppni virðist hafin um hvaða svæði fái að þjónusta olíuleitarskip sem haldi til á Drekasvæðinu. Vopnafjarðarhreppur og Langanesbyggð eru næst svæðinu en þjónustustig er hátt á Eyjafjarðarsvæðinu sem gerir það að álitlegum kosti. Helst virðist sem Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað saman geti keppt við Eyfirðingana.

 

Frá þessu er greint í nýjasta tölublaði Austurgluggans en tekist var á um málið á nýafstöðu þingi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Þar var tillaga Vopnfirðinga um áframahaldandi stuðning SSA við uppbyggingu þjónustumiðstöðvar á norðursvæðinu.

 

Blaðið hefur eftir Þórunni Egilsdóttur, oddvita Vopnafjarðarhrepps að henni þyki „helvíti hart og leitt“ að Vopnfirðingar fái ekki frekari stuðning.

 

„Vopnafjarðarhreppur hefur lagt mikið í þessa vinnu og hefur markvisst stefnt að því að kynna Vopnafjarðarhöfn sem þjónustuaðstöðu meðan á rannsóknarferlinu  stendur. Skýrsla varðandi þá vinnu hefur verið opinber frá 2007.“

 

Hún segir að það sé fordæmi fyrir breiðri samstöðu á Austurlandi og nefnir sem dæmi þá samstöðu sem ríkti þegar „farið var af stað með stórt verkefni á mið Austurlandi og við væntum sama  stuðnings og menn fengu þá. Samstarfið hlýtur að  þurfa að virka á báða bóga.“

 

Þórunn viðurkennir að „vissulega séu brestir“ í samstöðu sveitarfélaga á Austurlandi. Þrátt fyrir þetta ætli Vopnfirðingar að halda ótrauðir áfram sinni vinnu.

 

„En það er alveg ljóst og hefur alltaf verið í okkar huga að hér er um svo stórt verkefni að ræða að lítil sveitarfélög og þá meina ég öll sveitarfélög á Íslandi eru þess ekki megnug að standa ein í þessu. Þetta er fyrir þjóðina alla að takast á við og mæta ef af verður. Við höfum verið að horfa til fyrstu skrefanna í þessu verkefni og teljum okkur geta mætt því. 

 

En það verður ekki ákvörðun sveitarstjórnarmanna hvar staðsetning verður. Fyrst þurfum við að vita hvort Ísland verður fyrir valinu og í framhaldi af því munu þeir sem vinna munu verkið taka ákvarðanir. Styrkur okkar er klárlega landfræðileg staðsetning.“

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.