Börnin virt að vettugi í umferðinni

Gangbrautarvarsla á Egilsstöðum 1Í vikunni hafa starfsmenn VÍS á Egilsstöðum sinnt gangbrautarvörslu á Tjarnarbraut við Egilsstaðaskóla og Fagradalsbraut. Mörg börn fara yfir götuna á þessum stöðum og hafa foreldrar áhyggjur af öryggi þeirra enda er bílum oft ekið hratt þarna um og þungaflutningar jafnframt töluverðir á Fagradalsbraut.
Tillitsleysi ökumanna gagnvart börnunum er áberandi og allt of margir sem virða ekki rétt þeirra. Ekki hefur dugað að starfsmenn VÍS séu á staðnum í sýnileikavesti til að aðstoða börnin. Bílstjórar stöðva samt sem áður ekki ökutæki sín til að hleypa vegfarendum yfir götuna. Það var ekki fyrr en lögreglan slóst með í för að ökumenn sáu að sér.

Starfsmenn VÍS segja einnig áberandi marga nota gsm síma við akstur og gildir einu hvort það eru ökumenn þungaflutningabíla eða fólksbíla. Hins vegar hafi verið ánægjulegt að sjá að af öllum þeim börnum sem hjóla í skólann hafa einungis tvö verið án hjálms og var þeim bent á mikilvægi þess að nota hann.

Umferðin þyngist mikið þessa dagana og verður fólk að taka mið af því í skipulagningu sinni. Ekki láta stressið hlaupa með sig í gönur heldur halda ró sinni og sýna öðrum vegfarendum, gangandi, hjólandi og akandi, fyllstu tillitssemi.

 

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.