Orkumálinn 2024

MAST: Mikilvægt að tryggja dýrum hreint vatn ef til eldgoss kemur

lombMatvælastofnun hefur gefið út leiðbeiningar til dýraeigenda vegna hættu á eldgosi eldstöðinni Bárðarbungu. Hættan er hvað mest ef til öskufalls kemur.

Bændur hafa verið í viðbragðsstöðu síðustu daga, klárað að heyja og jafnvel smalað fé sínu niður af hálendinu í varúðarskyni.

Í leiðbeiningum MAST er meðal annars tiltekið að tryggja verði öllum dýrum aðgang að hreinu vatni og koma í veg fyrir að þau drekki úr stöðnu vatni. Á þetta jafnt við um gæludýr sem önnur dýr.

Forða verður skepnum undan öskufalli og takmarka beit á svæðum þar sem aska hefur fallið. Auka getur þurft aðgang að næringarefnum svo sem seleni.

Þá þurfa dýraeigendur að vera á varðbergi gagnvart flóðahættu, meta hvort skepnum sé betur borgið utanhúss eða innan og tryggja að skepnum á útigangi geti forðað sér undan flóði.

Hvaða áhrif hefur askan?

Gosefni sem berast með vindi geta mengað gróður og vatn og borist ofan í skepnur. Öskukornin eru oddhvöss eins og örsmá glerbrot. Þau særa augu, öndunarfæri og meltingarveg. Þau geta valdið niðurgangi, tannsliti og fótsæri. Flúor loðir við yfirborð kornanna. Magn flúors eykst því eftir því sem askan er fínni. Fín aska langt frá eldstöð er því ekki síður hættuleg skepnum en aska sem fellur nær.

Flúor bindur kalsíum í torleyst sambönd og stuðlar þannig að kalkskorti. Bráð eitrun getur valdið doða í ám og kúm, og klumsi í hryssum, einkum seint á meðgöngu og um burð eða köstun. Langvinn eitrun getur leitt af sér alvarlegt misslit á jöxlum (gadd), sem gerir skepnunum erfitt að tyggja, sem og óeðlilegar beinmyndanir á fótleggjum, sem valda helti. Önnur eitrunarhætta, sem búast má við í tengslum við eldgos, er vegna koltvísýrings í gosgufum sem sest í lægðir og getur valdið köfnun.

Hættan vegna eldgoss er breytileg eftir árstíð, dýrategund, aldri, magni flúors og annarra efna í öskunni og hvert askan berst. Hindra skal ef unnt er öskufall á skepnurnar og í fóður þeirra og sjá til þess að þær hafi aðgang að hreinu drykkjarvatni. Ef aska fellur á óslegið tún á heyskapartíma, er vissara að bíða með slátt þar til rignt hefur, sama gildir um beitiland. Flúorinn þynnist fljótt og eitrunarhætta dvínar, þegar rignir. Falli flúormenguð aska á hey þarf að meta magn flúors, sem gæti borist í skepnurnar og taka ákvörðun um nýtingu heysins á grundvelli þess.

Þolmörk gagnvart flúor

Hérlendis er farið eftir tilskipun frá Evrópusambandinu um þolmörk gagnvart flúor í fóðri. Í tilkynningu MAST segir þó að ekki sé fullkomið samræmi í vísindagreinum hvað varðar þolmörk búfjár gagnvart flúori í fóðri og drykkjarvatni og sumir álíti mörkin vera lægri en reglugerðin gerir ráð fyrir.

Mikill munur er á því hvort magn flúors sé hátt yfir langan tíma eða skamman. Bráð eituráhrif geta komið fram í nautgripum, sauðfé og hrossum ef magn flúors í þurrefni í fóðri fer yfir 250 mg/kg. Algengustu einkenni eru doði í kúm og kindum, og klums í hryssum, en einnig ýmis einkenni frá taugakerfi og meltingarfærum. Ef magn flúors í fóðri og drykkjarvatni er yfir mörkum í langan tíma geta komið fram einkenni í tönnum og beinum.

Jafnframt ber að hafa í huga að ýmsir þættir hafa áhrif á þolmörkin, s.s. aldur dýrsins, almennt næringar- og heilbrigðisástand og streita. Ung dýr, dýr í lélegu ásigkomulagi og dýr sem eru undir álagi vegna lélegs aðbúnaðar eða annarra þátta eru mun viðkvæmari.

Leiðbeiningarnar í heild sinni á vef MAST.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.