Norðfjarðargöng: Samið við Breiðdalssetur um sýnatöku

Jarðgangagröfturinn er kjörið tækifæri fyrir jarðfræðinga að rannsaka bergið í þessum hluta jarðlagastaflans.
Starfsfólk Breiðdalsseturs mun því taka sýni skipulega úr jarðgöngunum á um 100 m fresti og einnig úr einstaka áhugaverðum lögum eftir því sem tilefni er til. Breiðdalssetur mun varðveita sýnin og verða þau síðar meir aðgengileg til rannsóknar.
Christa Maria Feucht, verkefnastjóri og jarðfræðingur hjá Breiðdalssetri, kom í fyrstu sýnatöku í Norðfjarðargöng. Ljósmynd: Ófeigur Örn Ófeigsson/Hnit verkfræðistofa hf