Ársfundur Stapa 2022

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 1. júní nk. í Menningarhúsinu Hofi kl. 14:00.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreiknings og tryggingafræðilegt mat
  3. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  4. Hluthafastefna sjóðsins
  5. Breytingar á samþykktum
  6. Skipan stjórnar
  7. Starfskjarastefna
  8. Kosning löggilts endurskoðanda
  9. Laun stjórnar
  10. Nefnd um laun stjórnar
  11. Önnur mál

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og vonast stjórn sjóðsins eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundi hans.

Samkvæmt grein 10.1 í samþykktum sjóðsins skal senda aðildarfélögum tillögurnar minnst tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögurnar hafa verið sendar aðildarfélögum ásamt greinagerð.

Sjóðfélagar eiga kost á því að fylgjast með fundinum í vefútsendingu. Skráning vegna vefútsendingar er hér.

Önnur gögn má finna hér:
Ársreikningur Stapa 2021
Ársskýrsla Stapa 2021
Starfskjarastefna