Við lifum á merkilegum tímum

Við lifum á merkilegum tímum. Tímum sem geta varðað leiðina til framtíðar þar sem við munum upplifa raunverulegar kerfisbreytingar. Það er sú draumsýn sem ég og margir aðrir hafa um þessar mundir. Samfélag þar sem við öll njótum góðs af auðlindunum okkar, en ekki bara sumir. Þar sem eldri borgarar, öryrkjar og barnafjölskyldur búa ekki við skort heldur lífsins gæði sem allir eiga rétt á. Við eigum nefnilega nóg til fyrir alla.


Þessi draumsýn felur í sér að allir hafi aðgang að námi. Líka þeir sem eru orðnir eldri en 25 ára og hafa af einhverjum ástæðum hellst úr menntaskólalestinni. Við förum nefnilega ekki öll sömu leið í lífinu og það er líka í góðu lagi. Lífið er nefnilega ekki einsleitt heldur allskonar og það er okkar skylda sem samfélags að það sé svigrúm til staðar fyrir þá sem vilja afla sér menntunar seinna á lífsleiðinni. Við græðum nefnilega öll á því að fólk fái að blómstra og nýta hæfileika sína á sínum eigin forsendum en ekki innan hins þrönga regluverks sem stjórnsýslan á það til að skapa.

Sviðsmyndin sem mig dreymir um felur líka í sér að barnafjölskyldur hafi það gott í 12 mánaða fæðingarorlofinu sínu með nýfædda fjölskyldumeðlimnum. Fyrstu ár barna eru nefnilega svo gríðarlega mikilvæg fyrir framtíð þeirra og þá getur skipt sköpum hvort að mamma og pabbi þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur í fæðingarorlofinu eða vera svefnlaus yfir því hvernig þau eiga að brúa bilið þegar 9 mánaða orlofinu lýkur. Staðreyndin er nefnilega sú að við hlúum alls ekki nægilega vel að barnafjölskyldum sem hefur leitt af sér mun lægri fæðingartíðni og þá dapurlegu staðreynd að feður taka sér í mun minni mæli fæðingarorlof vegna þeirrar miklu tekjuskerðingar sem það hefur í för með sér.

Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hvaða áhrif það hefur á launamun kynjanna og jafnréttisbaráttuna á vinnumarkaði sem enn á langt í land. Samt er komið árið 2016.

Mig dreymir um heilbrigðiskerfi þar sem er hlúð að frábæra heilbrigðisstarfsfólkinu okkar sem vinnur kraftaverk á degi hverjum. Að við höldum okkar besta fagfólki vegna þess að launin og vinnuaðstæðurnar eru fyllilega samkeppnishæfar við það sem best gerist í kringum okkur. Að sjúklingar fái lífsnauðsynlega þjónustu án þess að þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur. Að þjónusta sálfræðinga sé sjálfsagður hluti heilsugæslunnar en ekki munaðar þeirri efnameiri eins og staðan er í dag.

Við höfum séð það lengi á hinum Norðurlöndunum að þetta er hægt. Og við getum þetta líka. En til þess að svo megi verða þurfum við að forgangsraða upp á nýtt og sjá til þess að þjóðin öll njóti arðs af hinum miklu auðlindum sem Ísland á. Við eigum nefnilega nóg til fyrir alla.

Höfundur skipar 3. sæti á lista Samfylkingar í Norðausturkjördæmi

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.