Fjárframlög til heilbrigðisstofnana

Það hefur komið á daginn það sem óttast var. Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar kemur fram að aukin framlög til heilbrigðiskerfisins ná ekki til landsins alls. Það eru að minnsta kosti tvær stofnanir á Norðausturhluta landsins sem virðast ekki vera á dagskrá þessarar ríkisstjórnar.

Það er nefnilega þannig að þó svo að heilbrigðisráðherra segi áherslu vera lagða á að efla heilbrigðisþjónustu um allt land er staðreyndin samt sem áður sú að bæði Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Norðurlands geta ekki haldið sér á floti og Heilbrigðisstofnun Norðurlands er beinlínis ætlað að hagræða í rekstri sínum.

Hagræðing sem getur kosta það að öryggi fólks er stefnt í hættu því að íbúar Raufarhafnar og nærsveita sjá nú fram á að um áramótin er fyrirhugað að leggja niður fullbúinn sjúkrabíl og vakt launaðra, menntaðra sjúkraflutningamanna, þjónustu sem tryggir öryggi íbúa og kemur þeim fljótt og örugglega áfram í réttar hendur heilbrigðisstarfsmanna í heimabyggð.

Þetta þýðir að fjórða stærsta heilbrigðisstofnun landsins nær alls ekki að þjónusta með fullnægjandi hætti þeim 35 þúsund íbúum sem henni er ætlað, því tek ég undir orð forstjóra heilbrigðisstofnunar Norðurlands, að þetta hljóti að vera mistök – og þó.

Heilbrigðisráðherra leggur áherslu á að hækka greiðsluþátttökuþakið, nefnir til sögunnar ferðakostnað þeirra sem þurfa að nýta sér heilbrigðiskerfið. Í þessum orðum kemur það skýrt fram að ekki standi til að rétta hlut þessara heilbrigðisstofnana þar sem ætlast er til að sjúklingar noti nauðsynlega þjónustu annarsstaðar en í heimabyggð, það er kannski þannig sem ráðherra skilgreinir hugtökin byggðamál og búsetujafnrétti.

Hugsanlega gerir ráðherra sér ekki grein fyrir hvað felst í því að færa þjónustu nær fólki, það er jú misjafnt hvaða sjónarhorn fólk velur sér.

Heilbrigðismál er það mál sem landsmenn vilja í forgang og nú nýverið benti landlæknir á þá staðreynd að heilbrigðiskerfið lifði sínu sjálfstæða lífi og það kristallast í áformum ríkisstjórnarinnar, lítill vilji virðist vera til þess að breyta því þannig að það virki sem best fyrir alla.

Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar er bjöguð, það er skýlaus krafa að heilbrigðisstofnanir á Norðausturlandi fái stóraukningu á þessum fjárlögum í meðförum Alþingis. Ég tel það eðlilegt þegar um er að ræða fjárframlög til heilbrigðiskerfisins þá nái aukningin til landsins alls. Eða hef ég misskilið hlutina all verulega? Hefur kerfið nú þegar tekið völdin í stefnumótun stjórnvalda?

Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.